enda eignast íslenskar konur einna flest börn í hinum vestræna heimi

Ég held að há fæðingartíðni og að það sé best að vera móðir á Íslandi hljóti að haldast í hendur við það að vel er búið að foreldrum og fjölskyldufólki hér á landi.

Það eru bara tvö lönd í Evrópu þar sem fæðingartíðni er hærri en hér, Tyrkland og Albanía. Ástæður þess að fæðingartíðni er há hér eru þó væntanlega nokkurs annars eðlis en þar.

Allir foreldrar vita að börnin þeirra munu fá pláss í leiksóla, munu fara í góðan grunnskóla, eiga kost á heilbrigðisþjónustu, góðri menntun og almennt bjartri framtíð.

Í Evrópu og Norður-Ameríku er staðan víðs vegar sú að annað foreldrið þarf að fara af vinnumarkaðnum til að hugsa um börnin eða foreldrarnir að vera það vel stæðir að geta ráðið einhvern til að hugsa um þau. Íslenskir foreldrar hafa hins vegar kost á því að blanda saman vinnu og fjölskyldulífi auk þess sem vel er búið að einstæðum foreldrum.

Sú staðreynd að það sé best að vera móðir á Íslandi og Íslendingar eru einna duglegastir vestrænna þjóða að eignast börn hlýtur að segja sína sögu um það að fólk vill eignast börn, getur það og er bjartsýnt um framtíð sína og barna sinna.

 


mbl.is Best að vera móðir í Svíþjóð og á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elías Theódórsson

Það vilja ekki allir foreldrar senda börn sín á uppeldisstofnanir. Það er sorgleg staða á Íslandi að foreldrar hafa ekki raunverulegt val varðandi uppeldi á börnum sínum. Það er hægt að gera betur fyrir börnin, t.d gera foreldrum kleyft að ala þau upp. Í dag er það einungis á færi vél stæðra foreldra að leyfa sér að ala upp sín börn. Einnig þyrfti að draga úr þeim algenga áróðri að börn fara á mis við eitthvað merkilegt ef þau alast upp hjá foreldrum í stað uppeldistofnunnar. Fjölmarkar rannsóknir hafa sýnt að besti uppalandinn eru foreldrarnir.

Elías Theódórsson, 8.5.2007 kl. 10:35

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Hér hafa of fá börn fæðzt á síðustu áratugum. Rétt rúmlega tvö börn á hverja konu er alls ekki nóg. Flóð innflytjenda í staðinn er ófarsæl lausn. Fósturdeyðingar hafa gert út af við rúmlega 22.000 ófædda frá 1975. Sjálfstæðisflokknum ætti að renna blóðið til skyldunnar að þrengja mjög heimildir til þeirra, það kæmi þjóðinni vel í mörgum tilvikum, en yrði að öðru leyti til að auka ábyrgð fólks í kynlífi og fækka "óvelkomnum þungunum". Flokkurinn á að hlusta á þær siðrænu raddir, sem þannig tala, -- þá fáu, sem minna á gildi lífs hinna ófæddu og skyldur okkar gagnvart þeim og horfa í þessu efni fram á veg. 68-kynslóð efnishyggjunnar hefur ríkt hér allt of lengi og ætti nú, ef við fylgjum fordæmi Frakka, að vera um það bil að missa völdin. Það er tími til kominn fyrir Geir Haarde að hyggja að þessu, ella getur hann látið strika út allar hræsnisfullar tilvísanir til stuðnings við kristin gildi úr stefnukrám flokksins.

Jón Valur Jensson, 8.5.2007 kl. 12:30

3 identicon

Engin er skyldugur til að senda börn sín í leikskóla á Íslandi. Enda tel ég ekki leikskóla vera uppeldisstofnanir, það er ég fyrst og fremst sem el börnin mín upp. Hins vegar lít ég svo á börn læri margt á því að vera í leikskóla og það sé af hinu góðu fyrir börn að umgangast jafnaldra sína. Fyrir utan það held ég að flest börn vilji vera í leikskóla. Hvort sem það sé allan daginn eða bara hluta úr degi.

Edda Sif (IP-tala skráð) 8.5.2007 kl. 14:07

4 identicon

Kæra Kristín Helga

Það er fallegt hjá þér að leyfa öllum að vera með, eins og til dæmis honum Elíasi.

Það er rétt að 68 kynslóðin var efnishyggjukynslóð (þó svo hafi ekki vakið fyrir þeim) og má margt við hana sakast en ég tel að fóstureyðingar séu ekki eitt af því.

hinsvegar er mér það ljúft að benda mannfjölgunarfrömuðnum á það að það eru lönd sem myndu glöð taka á móti mönnum eins og honum, pólland, Sádí Arabía, Norður Kórea, nei, ekki norður kórea, þar eru fóstureyðingar nefnilega leyfðar.

En njóttu skoðanafrelsins Elías, það gæti nefnilega komið að því að menn fyndist einhvertímann að skoðanir utan normsins myndu flokkast ósiðlegar og þá eru góð ráð dýr.

Þorleifur 

Þorleifur (IP-tala skráð) 8.5.2007 kl. 22:02

5 identicon

Kæra Kristín Helga

Nú verð ég að biðja þig innilegrar afsökunar.

Mér tókst nefnilega að móðga lesenda þinn, Elías nokkurn.

ég gerði honum (ég geri ráð fyrir því að viðkomandi sé hann) þann grikk að bera uppá hann að hann vildi banna fóstureyðingar.

Þar sem slíkt getur ekki hvarlað að nokkurm viti bornum manni þá hlýt ég að skrifa inn og biðjast auðmjúklega afsökunar um leið og mér urðu mistök mín ljós. Og því standa þessi orð hér nú.

Þannig, Kristín, í gegnum þig vil ég biðja Elías afsökunar.

 Þorleifur

Þorleifur (IP-tala skráð) 8.5.2007 kl. 22:35

6 identicon

Kæra Kristín Helga

Það er fallegt hjá þér að leyfa öllum að vera með, eins og til dæmis honum Elíasi.

Það er rétt að 68 kynslóðin var efnishyggjukynslóð (þó svo hafi ekki vakið fyrir þeim) og má margt við hana sakast en ég tel að fóstureyðingar séu ekki eitt af því.

hinsvegar er mér það ljúft að benda mannfjölgunarfrömuðnum á það að það eru lönd sem myndu glöð taka á móti mönnum eins og honum, pólland, Sádí Arabía, Norður Kórea, nei, ekki norður kórea, þar eru fóstureyðingar nefnilega leyfðar.

En njóttu skoðanafrelsins Elías, það gæti nefnilega komið að því að menn fyndist einhvertímann að skoðanir utan normsins myndu flokkast ósiðlegar og þá eru góð ráð dýr.

Þorleifur 

Þorleifur (IP-tala skráð) 8.5.2007 kl. 22:49

7 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þorleifur þessi talar hér án ábyrgðar og heldur því ítrekað áfram, jafnvel þótt hann leyfi sér að tala niður til Elíasar og brúki hótfyndni sína á mér vesölum. En það er enginn skömm að því að standa upp til varnar ófæddum börnum, og heyrt hef hnjóðsyrði í minn garð fyrir það margsinnis áður. Hvet Þorleif til að hugsa það mál af dýpt og alvöru.

Jón Valur Jensson, 9.5.2007 kl. 00:18

8 Smámynd: Elías Theódórsson

Edda Sif, frábært að þú sért ein af þeim sem elur upp sín börn. En það eru alltof margir sem láta uppeldisstofnair um það. Rétt enn er ekki skylda að færa börn til uppeldisstofnana fyrr en við 6 ára aldur, var 7 ára fyrir nokkrum árum en framsókn vill lækka þennan aldur niður í 5ár. Fyrir foreldra sem vinna fullan vinnudag hefur það ekki nema ca 3 kls á dag með barni sínu. (frá kl 17:00 - 20:00). Karakter barnsins er fullmótaður við 3ára aldur. Alltof mörg börn eru komin til uppalenda annarra en foreldra við 18mánaða aldur.  Uppeldisstofnanir henta sumum en það er ekkert raunverulegt val um annað þar sem flestir hafa ekki efni á að leyfa sér að vinna við uppeldi barna sinna. Sum börn hafa gott af því að vera á uppeldisstofnun en önnur ekki, rétt, þau læra margt þar en fara líka á mis við að vera þar. Börn geta auðveldrlega umgengist jafnaldra þrátt fyrir að eyða ekki 40 stundum á viku á uppeldisstofnun.

Þorleifur, ég móðgaðist erkkert við skrif þín. En ég hef aldrei skilið það hjá fólki sem finnst í lagi að deyða annan einstakling, sama hver ástæðan er.  Af hverju vill/þorir fólk ekki að gefa upp fullt nafn þegar það sendir frá sér pistla á opinberum vettvangi?

Elías Theódórsson, 9.5.2007 kl. 14:03

9 identicon

Ja ég má víst ekki eignast mitt næsta barn fyrr en 2009 svona til þess að ég fái orlof. Það er frábært að vera móðir, en veit ekki hvort Ísland komi þar eitthvað sérstaklega við sögu

Móðir (IP-tala skráð) 11.5.2007 kl. 23:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband